Fjölpressukerfi er svarið þegar eitt kerfi á að þjóna mörgum kælum.
Í stað þess að hver kælir fái sína eigin þjöppu situr hópur þjappa saman á einni grind með sameiginlegum sog- og olíugreinum. Kostirnir eru þrír: afkastastýring verður þrepaskipt í stað þess að ein þjappa slái sífellt út og inn, öll þjónusta er á einum stað, og bili ein þjappa heldur kerfið áfram að ganga á hinum.
CMMR-H notar lokaðar (hermetískar) þjöppur, þrjár eða fjórar.
Tæknilegar upplýsingar
| Þjöppur | 3 eða 4 lokaðar (hermetískar), allar með sveifarhúshitara |
|---|---|
| Hitastig | +5/−5 °C kæling · −18/−25 °C frysting |
| Kælimiðlar | R-452A (aðal) · R-449A · R-448A |
| Olíukerfi | Olíujöfnunargrein með hæðarglasi; olíuskilja á hverri þjöppu (þrífasa) |
| Soglagnir | Einangraðar, sér soglögn frá hverri þjöppu |
| Grind | Galvaníseruð og lökkuð, skrúfuð eining, stillanlegir dempufætur |
| Afhending | Þrýstiprófað, rafmagnsprófað, forfyllt með pólýólesterolíu, sent undir helíumþrýstingi |
CMMR-H eða CMMR-S?
CMMR-H er með lokuðum þjöppum — ódýrari í innkaupum en ekki hægt að gera við þær, skipta þarf um þjöppu í heilu lagi. CMMR-S er með hálflokuðum þjöppum sem má opna og gera við, og nær lægra hitastigi. Veldu H fyrir venjulega verslunar- og veitingakæla, S fyrir vinnslu og sólarhringsrekstur.
Afhending
Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.
Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

