Technoblock US / USQ — hljóðeinangruð þéttieining

Þéttieining með hljóðeinangruðu þjöpphólfi, 1.000–9.400 W. USQ kemur með rafmagnstöflu og rofa.

SKU: TB-USQ Category:

US-línan er með hljóðeinangrað þjöpphólf.

Það munar mest þar sem einingin stendur nálægt fólki: við bakdyr á veitingastað, í porti í íbúðabyggð eða þar sem hávaðamörk eru sett í starfsleyfi. Þjappan situr í einangruðu hólfi en þéttirinn er áfram með fullri loftræstingu.

Munurinn á US og USQ er rafbúnaðurinn: US er með einföldum tengiklemmum, en USQ kemur með rafmagnstöflu, aðalrofa, varliðum og þjöppuliða — tilbúið til tengingar.

Tæknilegar upplýsingar

UppsetningÁ gólfi, hentar úti
Hitastig+5/−5 °C kæling · −18/−25 °C frysting
Kæliafl1.000 – 9.400 W
KælimiðlarR-448A · R-449A · R-452A
HljóðvistHljóðeinangrað þjöpphólf
RafbúnaðurUS: tengiklemmur · USQ: rafmagnstafla með aðalrofa, varliðum og þjöppuliða
BúnaðurSveifarhúshitari, 6-póla þéttiviftumótor, vökvasafnari með síu og sjónglasi

Afhending

Þessi lína er pöntuð frá verksmiðju á Ítalíu. Sendu
okkur stærð klefans, hitastigið og hvar einingin á að sitja, og við staðfestum gerð,
afhendingartíma og verð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Sjá einnig splitt-kerfin STX og STZ.

❄️ Opna Technoblock reiknivélina

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top