Kælimiðill R-454B — kútur 9 kg

R-454B í 9 kg kút. Arftaki R-410A í loftkælingu og varmadælum — GWP 466 í stað 2.088.

SKU: FRE-454B kútur Category:

R-454B er sá miðill sem tekur við af R-410A í nýjum loftkælingum og varmadælum.

Hann er blanda af R-32 og R-1234yf og skilar GWP upp á 466 — tæplega fjórfalt lægra en R-410A. Afköst og þrýstingur liggja nálægt R-410A þannig að kerfishönnun breytist lítið, og nýtnin er örlítið betri. Stórir framleiðendur loftkælinga og varmadæla hafa valið R-454B fyrir nýjar línur til að uppfylla F-gas kröfur.

Miðillinn er A2L — lítillega eldfimur. Kerfi þurfa því íhluti og lekaskynjun sem eru vottuð fyrir A2L, og fyllingarmagn er takmarkað eftir stærð rýmis.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-454B
  • Umbúðir: 9 kg endurfyllanlegur kútur með vökvaupptöku
  • GWP (AR4): 466
  • Öryggisflokkur: A2L — lítillega eldfimt, lítil eiturhrif
  • Gerð: Sambræðingur (zeotropic), R-32 / R-1234yf
  • Hitarenna (glide): Lítil, u.þ.b. 1,5 °C
  • Kemur í stað: R-410A í nýjum búnaði
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Loftkæling, split-kerfi, loft-í-vatn varmadælur, vatnskælar
  • Fylling: Fyllist á vökvaformi

Er hægt að setja R-454B í R-410A kerfi?

Nei — ekki án breytinga. R-410A kerfi eru ekki hönnuð fyrir eldfiman miðil og hafa hvorki lekaskynjun né vottaða íhluti fyrir A2L. R-454B er ætlaður í nýjan búnað sem er hannaður fyrir hann. Ef þú þarft að fylla á eldra kerfi er R-410A áfram til hjá okkur.

Meðhöndlun eldfims kælimiðils

Þessi miðill er eldfimur. Kerfi sem nota hann þurfa viðeigandi lekaskynjun, loftræsingu og
íhluti sem eru vottaðir fyrir eldfima miðla. Vinna við kerfið krefst réttinda og verkfæra sem
eru ætluð eldfimum miðlum — notaðu aldrei sama endurheimtubúnað og fyrir A1-miðla án
hreinsunar. Við förum yfir kröfurnar með þér ef þú ert að hanna eða breyta kerfi.

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi.
Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™
kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði
framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt
F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það.
Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Hafðu samband fyrir verð og afhendingu:
kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top