SC15CNX er própanþjappa, 15 cm³ slagrými.
Secop (áður Danfoss Compressors) framleiðir hermetískar stimpilþjöppur fyrir minni kerfi. Þessi gerð er ætluð própani (R-290) — náttúrulegum miðli með GWP 3 sem fellur utan F-gas kvótakerfisins. Própan er eldfimt og setur kröfur um fyllingarmagn og uppsetningu.
Tæknilegar upplýsingar
| Framleiðandi | Secop (áður Danfoss Compressors) |
|---|---|
| Gerð | SC15CNX — hermetísk stimpilþjappa |
| Kælimiðill | R-290 (própan) |
| Slagrými | 15 cm³ |
| Rafmagn | 230V 1-fasa 50Hz |
Hafðu samband
Sendu okkur gerðina sem þú ert að skipta út, kælimiðilinn og hitastigið sem kerfið vinnur á — við staðfestum að pressan passi og gerum tilboð: kgg@kgg.is — sími 55-20000.
Sjá einnig allar kælipressur.

