Kælimiðill R-452A — kútur 11 kg (Opteon™ XP44)

Opteon™ XP44 (R-452A) í 11 kg kút. Arftaki R-404A í flutningakælingu og lágþrýstikerfum — nálgast R-404A best í afköstum.

SKU: FRE-452a-kútur Category:

Opteon™ XP44 (R-452A) er sá arftaki R-404A sem líkist upprunalega miðlinum mest.

Þar sem R-449A hentar flestum föstum kerfum er R-452A valið þegar kerfið má alls ekki breyta um hegðun — sérstaklega í flutningakælingu (kæligámar, kælibílar, Thermo King og Carrier einingar) og í kerfum með stórum afkastasveiflum. Rúmmálsafköst og þrýstingur eru nánast þau sömu og á R-404A, og útþrýstihiti lægri. GWP er 2.140 í stað 3.922 — sem dugar til að uppfylla F-gas kröfur fyrir nýjan búnað í mörgum flokkum.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-452A — Chemours Opteon™ XP44
  • Umbúðir: 11 kg endurfyllanlegur kútur með vökvaupptöku
  • GWP (AR4): 2.140
  • Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
  • Kemur í stað: R-404A og R-507A
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Flutningakæling, kæligámar, kælibílar, lágþrýstikerfi með miklum afkastasveiflum
  • Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)

R-452A eða R-449A?

Í föstum kæli- og frystikerfum mælum við með R-449A — lægra GWP og betri nýtni. Í flutningakælingu og þar sem búnaðarframleiðandi tilgreinir R-452A er það rétta valið. Hringdu ef þú ert í vafa og við förum yfir valið með þér.

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top