Kælimiðill R-32 — kútur 10 kg

R-32 í 10 kg kút. Hreint efni með GWP 675 — staðalmiðill í varmadælum og loftkælingu.

SKU: FRE-32a kútur Category:

R-32 (diflúormetan) er ríkjandi kælimiðill í varmadælum og loftkælitækjum í dag og leysti R-410A af hólmi.

R-32 er hreint efni en ekki blanda, sem þýðir að ekkert hitasvið (glide) myndast og hægt er að fylla á bæði á gas- og vökvaformi og bæta á kerfi án þess að tæma það. GWP er 675 — um þriðjungur af R-410A sem það leysir af hólmi — og kælimiðilsmagnið er um 20% minna fyrir sömu afköst. Nýtni er hærri, sem skilar sér beint í SCOP-gildi varmadælunnar. R-32 er flokkað A2L: lítillega eldfimt. Það krefst ekki sérstakra tækja við venjulega þjónustu en lekaleit og loftræsting rýmis þarf að vera í lagi.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-32 — diflúormetan (hreint efni)
  • Umbúðir: 10 kg einnota kútur
  • GWP (AR4): 675
  • Öryggisflokkur: A2L — lítillega eldfimt, lítil eiturhrif
  • Kemur í stað: R-410A
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Varmadælur loft í loft og loft í vatn, loftkæling, splitkerfi
  • Fylling: Má fylla á gas- eða vökvaformi — ekkert hitasvið

Flest varmadælutæki og loftkælitæki á markaði í dag keyra á R-32. Í nýjustu tækjunum er R-290 (própan) að taka við — GWP 3 í stað 675. Athugaðu alltaf merkiplötu tækisins áður en fyllt er á; R-32 og R-290 eru ekki innbyrðis skiptanleg.

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top