Kælimiðill R-407F — kútur 10 kg

R-407F í 10 kg kút. Arftaki R-404A í eldri kerfum með mineral- eða POE-olíu — hærri afköst en R-407C.

SKU: FRE-407F-kútur Category:

R-407F er millistigslausn fyrir kerfi sem voru hönnuð fyrir R-404A eða R-22.

R-407F skilar hærri kæliafköstum og lægri útþrýstihita en R-404A og hefur GWP 1.825 í stað 3.922. Það hentar sérstaklega í eldri miðlungs- og lághita kerfum þar sem skipt er yfir án þess að endurhanna kerfið. Hitasviðið (glide) er um 6 K, sem þarf að taka tillit til við stillingu þensluventils og við ákvörðun yfirhitunar. Í nýjum kerfum og við stærri umbreytingar mælum við frekar með R-449A.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-407F
  • Umbúðir: 10 kg einnota kútur
  • GWP (AR4): 1.825
  • Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
  • Kemur í stað: R-404A og R-22 í miðlungs- og lághitakerfum
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Hitasvið (glide): um 6 K — stilla þarf þensluventil
  • Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top