Kælimiðill R-449A — flaska 55 kg (Opteon™ XP40)

Opteon™ XP40 (R-449A) í 55 kg flösku — hagkvæmasta einingin fyrir stærri kerfi og þjónustuverkstæði.

SKU: FRE-Flaska-449a Category:

Stóra einingin af Opteon™ XP40 (R-449A) — 55 kg endurfyllanleg flaska.

Sama vara og 11 kg kúturinn en í stærri umbúðum fyrir þá sem fylla mikið: kæliverktaka, matvælavinnslur, verslunarkeðjur og skip. Verð á kíló er umtalsvert lægra en í kút. Flaskan er endurfyllanleg og skilast til okkar tóm — við sjáum um endurfyllingu hjá Chemours. R-449A er arftaki R-404A með GWP 1.397 í stað 3.922 og krefst engra breytinga á vélbúnaði.

Tæknilegar upplýsingar

  • Kælimiðill: R-449A — Chemours Opteon™ XP40
  • Umbúðir: 55 kg endurfyllanleg flaska með vökvaupptöku
  • GWP (AR4): 1.397
  • Öryggisflokkur: A1 — óeldfimt, lítil eiturhrif
  • Kemur í stað: R-404A og R-507A
  • Smurolía: POE (pólýólester)
  • Notkun: Stór frysti- og kælikerfi, matvælavinnsla, skip, verslunarkeðjur
  • Fylling: Fyllist ávallt á vökvaformi — sambræðingur (zeotropic)

Flaskan er með vökvaupptöku (dip tube) og fyllt er á vökvaformi. Flöskuna skal ávallt hafa upprétta og trygga við fyllingu.

Chemours á Íslandi

Kristján Gíslason ehf. er dreifingaraðili Chemours kælimiðla á Íslandi. Við flytjum inn beint frá framleiðanda og eigum Opteon™ og Freon™ kælimiðla á lager í Reykjavík — kúta, flöskur og bamba. Vörurnar koma með upprunavottorði framleiðanda og eru rekjanlegar í gegnum lotunúmer.

F-gas reglur og afhending

Sala á flúoruðum gróðurhúsalofttegundum er háð reglugerð. Kaupandi þarf að hafa gilt F-gas réttindaskírteini eða vera fyrirtæki með starfsmann sem hefur það. Við skráum sölu í samræmi við kröfur og ráðleggjum um meðhöndlun og skil á notuðum kælimiðli.

Umbúðagjald og mengunargjald leggst ofan á verð kælimiðils samkvæmt gildandi gjaldskrá. Hafðu samband fyrir verð og afhendingu: kgg@kgg.is — sími 55-20000.

Spyrja um þessa vöru

Scroll to Top