Sérpöntun: Varahlutirnir eru sérpantaðir og ekki til á lager. Sendu okkur gerð og raðnúmer pressunnar, ásamt vörunúmeri ef það er til, og við gefum þér verð og afhendingartíma. Sími 55-20000.
Mycom varahlutir fyrir skrúfupressur
Mycom (Mayekawa) skrúfupressur eru algengar í iðnaðarkælingu með ammoníaki. Við útvegum upprunalega varahluti (OEM) í allar Mycom skrúfupressur.
Það sem við útvegum
- Allar Mycom skrúfupressur, til dæmis 125, 160, 200, 250 og 320
- Upptektarsett og viðgerðarsett
- Öxulþétti, legur, O-hringir og pakkningar
- Olíusíur
Hvernig pantar þú?
Gefðu upp gerð pressunnar og raðnúmer af merkiplötunni, ásamt upprunalegu vörunúmeri (OEM) og fjölda ef þú hefur það. Þá getum við útvegað rétta hlutinn í fyrsta sinn.

